Leiðin að elska mig
eitt skref í einu
Þegar við ræðum líf – þurfum við að vita um hvað við erum að tala
Ég skrifa þessa grein til að leggja inn í umræðuna skýrari sýn á lífsgæði og mannréttindi trans fólks. Umræðan snýst oft um óafturkræf inngrip, en gleymir stundum þeirri alvarlegu vanlíðan sem getur fylgt því að fá ekki viðeigandi stuðning. Markmið mitt er að færa umræðuna nær ábyrgð, þekkingu og raunverulegum þörfum þeirra sem málið snertir.

Kristín Magdalena Ágústsdottir
Apr 17, 2026
Kvíði og vonleysi – ekki bakslag, heldur boð
Um kvíða, gömul sár og hvernig við lærum að mæta þeim með mýkt. Í þessari grein fjalla ég um það hvernig kvíði og höfnun geta vaknað – jafnvel hjá þerapista. Ég deili innsýn úr mínu eigin ferli og starfi, þar sem ég skoða hvernig líkaminn geymir óunna reynslu og hvernig við getum lært að mæta vanlíðan með mýkt í stað þess að flýja hana eða bæla niður. Ef þú þekkir þig í þessu, þá ert þú ekki ein/n – og það er hægt að læra að mæta þessum tilfinningum á annan hátt.

Kristín Magdalena Ágústsdóttir
Apr 15, 2026
Þegar við lærum að þóknast- og gleymum sjálfum okkur.
Ég skrifaði þessa grein til að setja orð á eitthvað sem margir upplifa, en eiga erfitt með að útskýra. Tilfinningu sem getur fylgt manni í daglegu lífi — að vera stöðugt að reyna að gera betur, en samt upplifa að það sé aldrei alveg nóg. Í greininni fjalla ég um skömm, sjálfsmynd og það sem við lærum snemma um okkur sjálf í tengslum við aðra. Ég tengi þetta meðal annars við skrif Alice Miller og Gabor Maté, en líka við það sem ég sé í starfi mínu. Fyrir mér snýst EQ (tilfinningagreind) ekki um að laga sig til, heldur um að skilja sjálfan sig betur. Að geta staldrað við og spurt: Hvað er ég að upplifa? Hvaðan kemur þessi rödd? Og hvað gerðist í lífi mínu sem mótaði þetta?

Apr 14, 2026
Skömmin – þegar við teljum okkur vera vandamálið
kvöld rakst ég á innlegg á LinkedIn sem fjallaði um afköst, pressu og það að skilja sjálfan sig utan við stöðugt „að gera“. Það vakti hjá mér dýpri spurningu. Því undir þessari stöðugu þörf til að gera og sanna sig leynist oft eitthvað annað — taugakerfi sem hefur lært að vera á varðbergi og skömm sem fær okkur til að trúa að eitthvað sé að okkur. Í minni reynslu er skömmin ekki merki um að við séum gölluð. Hún er merki um að við séum að bera eitthvað sem við höfum ekki enn fengið að skilja og vinna úr. Og þar, mitt í þeirri upplifun, liggur líka vonin. Því þegar við byrjum að skilja okkur sjálf með mildi — þá opnast leiðin heim til okkar sjálfra.

Kristín Magdalena Ágústsdóttir
Mar 26, 2026
🟡 Hvernig skiljum við andlega vanlíðan?
Líf okkar mótast af reynslu. Það sem við upplifum, það sem við finnum og það sem við þurfum að aðlagast — allt skilur eftir spor í okkur. Heilinn gegnir mikilvægu hlutverki í þessu ferli. Hann geymir reynslu, flokkar upplýsingar og hjálpar okkur að skilja heiminn. En það sem við höfum gengið í gegnum lifir ekki aðeins í hugsunum okkar — heldur einnig í líkamanum og tilfinningunum. Þess vegna snýst heilun ekki bara um að skilja með huganum, heldur um að gefa því rými sem hefur ekki enn fengið að vera séð, fundið og unnið úr.

Kristín Magdalena Ágústsdóttir
Mar 23, 2026
Skömmin – þegar manneskjan hættir að sjá eigið virði
Skömmin er ein þyngsta tilfinning sem manneskja getur borið. Hún getur skyggt á sjálfsmynd okkar og látið okkur trúa því að við séum ekki nógu góð eða ekki þess verð að vera elskuð. Í þessari grein fjalla ég um skömmina, rætur hennar og hvernig hún getur haft áhrif á líf okkar – og hvernig leiðin út úr henni byrjar oft með skilningi, mildi og tengslum.

Kristin Magdalena Ágústsdóttir
Mar 15, 2026
Fréttatilkynning
Ég verð stödd á ráðstefnu í Noregi dagana 6.–23. mars og tek því ekki á móti skjólstæðingum á því tímabili. Hægt er að bóka tíma frá og með 23. mars á heimasíðunni. Ég hlakka til að halda áfram vinnunni með ykkur að lokinni ferð.

Kristín Magdalena Ágústsdóttir
Feb 26, 2026
Þegar lækning hefst með hlustun
Í starfi mínu sem EQ-þerapisti hef ég ítrekað séð hvernig raunveruleg hlustun getur breytt líkamlegu og andlegu ástandi manneskju. Í þessari grein skrifa ég um tengsl, taugakerfið og hvers vegna það skiptir máli að á manneskju sé hlustað — ekki aðeins af mannlegri hlýju, heldur vegna þess að það hefur raunveruleg lífeðlisfræðileg áhrif.

Kristín Magdalena Ágústsdóttir
Feb 26, 2026
Tilfinningar – grunnur að sjálfsskilningi
Í þessari grein er fjallað um hvernig tilfinningar þróast í tengslum við umhverfi okkar, hvernig áföll geta lifað áfram í líkamanum og jafnvel flust milli kynslóða, og hvers vegna tilfinningagreind er ein mikilvægasta hæfni samtímans. Greinin varpar ljósi á hvernig óunnar tilfinningar hafa áhrif á sjálfsmynd og samskipti – og hvernig hægt er að vinna með þær á öruggan og faglegan hátt í tilfinningagreindar þerapíu.

Kristín Magdalena Ágústsdóttir
Feb 23, 2026
10 vikna hópur – Að heyra sjálfan sig
Að heyra sjálfan sig er námskeið sem byggir á þeirri einföldu en djúpu iðkun að hlusta – bæði á sjálfan sig og aðra. Vinnan fer fram í litlum hópi þar sem lögð er áhersla á öryggi, virðingu og nærveru. Markmið námskeiðsins er að styðja við aukna sjálfsvitund og dýpri tengsl – án þess að þurfa að leysa, laga eða bera ábyrgð á upplifun annarra. Unnið er með að þekkja eigin viðbrögð, setja orð á tilfinningar og skilja hvernig sögur annarra snerta okkur sjálf. Í hverjum tíma fá þátttakendur rými til að tjá sig, í takt við það sem þeir vilja og þurfa að deila hverju sinni. Smæð hópsins er meðvituð ákvörðun, þannig að allir fái raunverulegt rými til að tjá sig og upplifa að vera heyrðir. Unnið er með hlustun og speglun, þar sem þátttakendur æfa sig í að hlusta af nærveru og setja orð á það sem vaknar innra með þeim – án túlkunar, ráðgjafar eða leiðréttinga. Þessi rammi styður við öryggi, jafnvægi og dýpt í vinnunni. Þátttakendur mega vænta þess að þróa með sér aukna færni í að vera til staðar í samskiptum, öðlast dýpri skilning á eigin tilfinningum og finna hvernig það er að vera í rými þar sem nærvera og einlægni fá að leiða. Fyrir marga markar þetta fyrstu reynslu af hlustun sem byggir á fullri nærveru, án þess að ætlast sé til ráðgjafar eða lausna. Nálgun mín á rætur að rekja til menntunar minnar við EQ Institute og byggir á því að skapa öruggt rými þar sem hver einstaklingur fær að mæta eins og hann er.

Kristín Magdalena
Jan 28, 2026









