10 vikna hópur – Að heyra sjálfan sig

Kristín Magdalena

January 28, 2026

Þetta er 10 vikna hópur þar sem við hittumst einu sinni í viku í 2,5 klst.
Hópurinn er hámark 5 manns til að tryggja öryggi, ró og raunverulegt rými fyrir hvern og einn.

Þetta er ekki námskeið með verkefnum eða æfingum.
Þetta er rými fyrir samtal, hlustun og að vera séður.

Hvernig tíminn fer fram

Allir tímar byrja á stuttri yfirferð á samskiptareglum:

  • engin gagnrýni

  • engar ráðleggingar eða lausnir

  • trúnaður og virðing

  • einn talar í einu – hinir hlusta

Síðan fær sá sem er tilbúinn að byrja að tala.
Þannig líða 2 og hálfur tími þar sem hópurinn lærir að vera til staðar fyrir hvert annað – án þess að laga, hjálpa eða „leiðrétta“.

Um hvað er talað?

Fólk talar um lífið eins og það er:
líðan, tengsl, æsku, unglingsár, samskipti við foreldra, það sem var auðvelt – og það sem var erfitt.
Markmiðið er ekki að komast að einni niðurstöðu, heldur að fá pláss til að finna, segja og skilja.

Fyrir hvern?

Hópurinn hentar fólki sem:

  • vill fá öruggt rými til að tala án þess að fá komment

  • vill læra markvissa hlustun og heilbrigð mörk

  • vill heyra sjálfan sig skýrar og verða mildari við eigin líðan