Fréttatilkynning

Kristín Magdalena Ágústsdóttir
February 26, 2026

Dagana 6. mars til 23. mars verð ég stödd í Noregi á ráðstefnu sem tengist áfallafræðum, tengslum og þeirri dýpri vinnu sem ég legg stund á í starfi mínu.
Á þessu tímabili tek ég ekki á móti skjólstæðingum.
Fyrir mér er þetta mikilvægur hluti af faglegri þróun. Ég legg ríka áherslu á að halda áfram að læra, dýpka skilning minn og styrkja þá nálgun sem ég vinn eftir með ykkur. Sú vinna sem við förum í saman krefst ábyrgðar, þekkingar og stöðugrar endurnýjunar.
Hægt verður að bóka tíma aftur frá og með 23. mars, og bókanir eru opnar á heimasíðunni.
Ég hlakka til að snúa aftur og taka á móti ykkur.
Farið vel með ykkur.
Kristín